Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn um leigjendur félagslegra leiguíbúða
Málsnúmer: 1810596
Ferill máls
01
Velferðarráð - 35. fundur
Lagt var fram svar við fyrirspurn af fundi ráðsins þann 8. október sl.
Velferðarráð þakkaði fyrir greinargóð svör.
Kristín Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun: "Ég þakka fyrir greinargóð svör um samsetningu núverandi íbúa í félagslegu húsnæði. Þegar samsetning á biðlista er borin saman við samsetningu á núverandi íbúum í félagslegu húsnæði Kópavogsbæjar kemur í ljós að barnlausir einstaklingar og einstæðir foreldrar eru í brýnustu þörf fyrir félagslegar íbúðir. Ljóst er að þörf er á stórátaki í kaupum á litlum íbúðum fyrir þennan hóp."