Til baka í fundargerðir
Smiðjuvegur 4, Velox ehf. Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1810852
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2935. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 16. nóvember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29. október, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Velox ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Smiðjuvegi 4, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.