Til baka í fundargerðir
Tillaga að skipulagsbreytingum á stjórnkerfi bæjarins 2018.
Málsnúmer: 1811197
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1184. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga um að mannauðsmál færist af miðlægri starfsmannadeild undir hvern og einn sviðsstjóra og innkaupamál færist af fjármáladeild undir lögfræðideild.
Forseti bar tillögu um skipulagsbreytingar undir fundinn í tvennu lagi.
Tillaga um að færa mannauðsmál af miðlægri starfsmannadeild undir hvern og einn sviðsstjóra var samþykkt með 11 atkvæðum.
Tillaga um að innkaupamál færist af fjármáladeild til lögfræðideildar var samþykkt með 11 atkvæðum.