Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hestheimar 14-16, Samskipahöll. Sprettur rekstrarfélag. Umsagnarbeiðni vegna tímabundins áfengisleyfis

Málsnúmer: 1811209

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2934. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 12. nóvember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 9. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um Spretts rekstrarfélags, kt. 580713-0680, um tímabundið áfengisleyfi vegna árshátíðar sem verður haldin þann 17. nóvember frá kl. 19:00-01:00, í Samskipahöllinni, að Hestheimum 14-16, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.