Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Útboð Vallarlýsing Kópavogs- og Kóravöllur

Málsnúmer: 1811397

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1189. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs um vallarlýsingu á æfingavöll við Kórinn og Kópavogsvöll. Lagt er til að samið verði við Metatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Péturs Hrafns Sigurðssonar að samið verði við Metatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

Þar sem ágreiningur er um málið í bæjarráði kemur það til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Hlé var gert á fundi kl. 16.25. Fundi var framhaldið kl. 16.43.

Fulltrúar BF Viðresnar, Samfylkingar og Pírata lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Nú liggur fyrir þessum bæjarstjórnarfundi að taka tilboði þar sem kveðið er á um 500 lux lýsingu og 25 metra möstur við Kópavogsvöll. Við höfum bent á þann möguleika að setja upp 27 metra möstur þó kastarar yrðu hafðir í 25 metra hæð.

Við höfum áhyggjur af því að í framtíðinni gæti komið upp krafa um meiri lýsingu og þá yrði til viðbótarkostnaður við að skipta um möstur. Með því að setja upp 27 metra möstur tryggðum við að fjárfestingin sem bærinn er að fara í vegna flóðlýsingar á Kópavogsvelli skilaði sér til framtíðar.

Þegar um umfangsmikla og mikilvæga fjárfestingu er að ræða, sem gæti tekið töluverðum breytingum í takt við tækniframþróun og kröfur alþjóðlegra regluverka, þá er mikilvægt að rýna gögnin vel. Við hörmum að ekki sé horft til framtíðar.

Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Þorvarðarson, Sigurbjörg Egilsdóttir, Bergljót Kristinsdóttir, Elvar Páll Sigurðsson"

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 10 atkvæðum og samþykkir að samið verði við Metatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll. Bergljót Kristinsdóttir greiddi ekki atkvæði.

02

Bæjarstjórn - 1188. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs um vallarlýsingu á æfingavöll við Kórinn og Kópavogsvöll. Lagt er til að samið verði við Megatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

03

Bæjarstjórn - 1188. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs um vallarlýsingu á æfingavöll við Kórinn og Kópavogsvöll. Lagt er til að samið verði við Megatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

Einar Örn Þorvarðarson lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Lagt er til að ákvörðun um lýsingu á Kópavogsvelli verði frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.

Einar Örn Þorvarðarson"

Hlé var gert á fundi kl. 18:18. Fundi var fram haldið kl. 18:40.

Tillaga Einars Arnar Þorvarðarssonar um frestun var felld með sex atkvæðum þeirra Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson, Guðmundar Geirdal og Birkis Jóns Jónssonar, en fimm greiddu atkvæði með henni, þau Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Fulltrúar Samfylkingar, BF-Viðreisnar og Pírata lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Það er hreint með ólíkindum að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks skuli ekki geta fallist á að fresta málinu milli funda bæjarstjórnar meðan það er kannað hvort og þá hvaða kostnaður felst í því að hækka möstrin um tvo metra og þannig gera möstrin þannig úr garði að auðvelt verði að bregðast við auknum kröfum í framtíðinni.

Þessi afgreiðsla tryggir að ekki verður hægt að bregðast við auknum kröfum í framtíðinni öðruvísi en að taka möstrin niður og byggja ný.

"Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"

Hlé var gert á fundi kl. 18:42. Fundi var fram haldið kl. 18:45.

Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Tillaga minnihlutans er ekki í samræmi við útboð og því yrðu tafirnar meira en hálfur mánuður.

Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson, Guðmundur Geirdal, Birkir Jón Jónsson"

04

Bæjarráð - 2941. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 7. janúar, lagðar fram niðurstöður útboðs um vallarlýsingu á æfingavöll við Kórinn og Kópavogsvöll. Lagt er til að samið verði við Megatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Péturs Hrafns Sigurðssonar að samið verði við Megatron ehf. um uppsetningu á 200 LUX lýsingu á Kóravöll og 500 LUX lýsingu á Kópavogsvöll.

Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaður telur ekki skynsamlegt að miða við lágmarkskröfur er varðar lýsingu á Kópavogsvöll sem er aðalleikvangur bæjarins. Mannvirkjunum er ætlað að nýtast næstu áratugi. Hætta er á að slíkar kröfur verði úreltar eftir nokkur ár og situr þá Kópavogur uppi með lýsingu sem ekki mætir kröfum nútímans. Eðlilegra er að miða lýsingarkröfur við 800 lux.

Pétur Hrafn Sigurðsson"

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ákvörðun um lýsingu stenst þær kröfur sem gerðar eru til lýsingar á knattspyrnuvöllum.

Ármann Kr. Ólafsson"