Tilnefningar til íþróttakonu og -karli Kópavogs 2018
Málsnúmer: 1811669
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 88. fundur
Lagður fram listi með þeim íþróttakonum, íþróttakörlum og íþróttaflokkum sem tilnefnd eru af íþróttafélögum/-deildum í Kópavogi vegna íþróttaársins 2018.
Íþróttaráð samþykkir að veita 30 íþróttamönnum í flokki 13-16 ára og 10 íþróttamönnum í flokki 17 ára og eldri, viðurkenningu ráðsins á Íþróttahátíð Kópavogs sem haldin verður í íþróttamiðstöð og starfsstöð GKG, fimmtudaginn 10. janúar 2019.
Íþróttafólk sem hlítur viðurkenningu íþróttaráðs að þessu sinni er;
Í aldursflokki 13-16 ára;
Birna Kristín Kristjánsdóttir og Markús Birgisson fjálsum íþróttum, Tómas Pálmar Tómasson karate, Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz og Andri Fannar Baldursson knattspyrnu, Birkir Ísak Jóhannsson skák, Ólafía Elísabet Einarsdóttir og Björn Davíðsson skíðum, Kristín Helga Hákonardóttir og Patrík Viggó Vilbergsson sundi úr Breiðabliki. Lejla Sara Hadziredzepovic og Elvar Breki Árnason blaki, María Tinna Hauksdóttir og Gylfi Már Hrafnsson dans, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Símon Michael Guðjónsson handbolta, María Lena Ásgeirsdóttir og Valgeir Valgeirsson knattspyrnu úr HK. Fanný Helga Þórarinsdóttir og Fannar Kvaran úr Dansíþróttafélagi Kópavogs, Sonja Margrét Ólafsdóttir og Dagur Kári Ólafsson fimleikum Gerplu, Hulda Clara Gestsdóttir og Sigurður Arnar Garðarsson GKG, Rebekka Ýr Arnarsdóttir og Adrian Romanowski Dansfélaginu Hvönn, Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Kristófer Darri Sigurðsson Hestamannafélaginu Spretti, Sofia Sóley Jónasdóttir og Eliot Roberted Tennisfélag Kópavogs.
Úr aldursflokki 17 ára og eldri;
Svana Katla Þorsteinsdóttir karate, Agla María Albertsdóttir og Gunnleifur V. Gunnleifsson knattspyrnu og Ellen Ýr Jónsdóttir kraftlyftingum og Ingvar Ómarsson hjóleiðum Breiðabliki. Valgarð Reinhardsson og Agnes Suto Tuuha fimleikar Gerplu, Birgir Leifur Hafþórsson GKG, Bára Einarsdóttir og Jón Þór Sigurðsson Skotfélagi Kópavogs.
02
Íþróttaráð - 87. fundur
Lagðar fram tilnefningar íþróttafélaganna á íþróttafólki sínu til íþróttakonu og íþróttakarls Kópavogs ásamt tilnefningum til flokks ársins 2018
Íþróttaráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Þá verða lagðar fram tillögur um það íþróttafólk sem hljóta viðurkenningar á íþróttahátíð Kópavogs þann 10. janúar nk. Jafnframt því verður kosið um þær 5 íþróttakonur og 5 íþróttakarla sem verði á kjörskrá fyrir vefkosningu bæjarbúa í lok ársins.