Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kríunesvegur 12, Hótel Kríunes. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað

Málsnúmer: 1811818

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2941. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 27. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 14. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kríuness ehf., kt. 670602-4190, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Kríunesi við Vatnsenda, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.