Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 16, BB 44 Gisting ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjað rekstrarleyfi gististaðar

Málsnúmer: 1812047

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2941. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 2. janúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 3. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn BB 44 Gistingar ehf., kt. 710502-4120, um endurnýjað rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Nýbýlavegi 16, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.