Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn um heimsóknir grunnskólabarna til trúar- og lífsskoðunarfélaga

Málsnúmer: 1812415

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 66. fundur

Jafnréttisráðgjafi kynnti þau svör sem borist hafa og er falið að senda ítrekun til þeirra skóla sem ekki hafa svarað fyrirspurn ráðsins.

Hákon Helgi Leifsson fulltrúi Pírata ítrekar að svör berist til nefndarinnar sem fyrst svo hægt sé að taka afstöðu til málsins.

02

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 65. fundur

Ráðið felur jafnréttisráðgjafa að senda eftirfarandi fyrirspurn til grunnskóla í Kópavogi:

1. Eru farnar skipulagðar heimsóknir til trúar- og lífsskoðunarfélaga á vegum skólans?

2. Hversu margar ferðir eru farnar á ári, hvenær og til hverra?

3. Hvaða árgangar fara í slíkar ferðir?

4. Hvert er fyrirkomulag slíkra ferða?

4.a. Hversu mörg börn úr hverjum árgangi fara í slíkar ferðir?

4.b. Hversu mörg börn úr hverjum árgangi fá undanþágu frá ferðum?

4.c Þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá undanþágu frá ferðum, og ef svo er hver eru þau skilyrði?

4.d. Hvert er fyrirkomulag skráningar í slíkar ferðir?