Frágangur verktaka og aðgerðir gegn götulokunum og lokun gangstétta. Erindi frá Indriða Stefánssyni
Málsnúmer: 1901034
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3052. fundur
Lagt fram erindi Indriða Stefánssonar dags. 2. janúar 2019 varðandi að finna úrlausnir sem koma í veg fyrir að eins mikið verði um götulokanir til lengri tíma og að það verði vitundarvekning meðal verktaka um að gangstéttar eigi sér hlutverk. Að lokuð gangstétt sé mannréttindamál þar sem ekki sé hægt að gefa sér að hreyfihamlaðir geti komist leiðar sinnar. Lögð fram umsögn umhverfisvið dags. 15. júní 2021 varðandi nauðsynlegar lokanir á gangstéttum og gönguleiðum.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 142. fundur

Lagt fram og kynnt.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 109. fundur
Lagt fram erindi Indriða Stefánssonar varðandi frágang eftir verktaka í Kópavogi og lokanir á gönguleiðum og takmörkun á aðgengi fyrir alla um göngustíga bæjarins frá 2. janúar 2019.
Greint frá stöðu mála.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.