Tillaga að breyttri gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu
Málsnúmer: 1901100
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1192. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði til að tillögu að breytingu á gjaldskrá verði frestað og vísað til öldungaráðs til umsagnar.
Tillögu Sigurbjargar Erlu var hafnað með atkvæðum Ármanns Kr. Ólafssonar, Margrétar Friðriksdóttur, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Johnson, Guðmundar Geirdal og Birkis Jóns Jónssonar en Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir og Einar Þorvarðarson greiddu atkvæði með tillögunni.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun f.h. undirritaðra bæjarfulltrúa:
"Tillagan felur í sér að einfalda gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu en með því flyst kostnaður frá tekjuhærri eldri borgurum yfir á þá tekjulægri. Við teljum ávinninginn af umræddum breytingum ekki réttlæta þessa kostnaðartilfærslu.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Einar Þorvarðarson, Bergljót Kristinsdóttir"
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með sex atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur og Einars Þorvarðarssonar. Pétur Hrafn Sigurðsson greiddi ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2948. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu að breyttri gjaldskrá.
03
Velferðarráð - 41. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti framlagða tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir sitt leyti.
04
Velferðarráð - 39. fundur
Lagt fram til umræðu.
Deildarstjóra var falið að vinna hugmyndir að einföldun gjaldskrár áfram.