Til baka í fundargerðir
Beiðni um úttekt og mögulegar útfærslur á íþróttastyrkjum til eldri borgara frá fulltrúm Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar
Málsnúmer: 1901832
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2944. fundur
Frá fulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar, óskað er eftir að gerð verð úttekt og fundnar mögulegar útfærslur á íþróttastyrkjum til eldri borgara.
Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Í málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er sérstaklega kveðið á um að heilsuefling eldri borgara verði innleidd m.a. með íþróttastyrk. Mikilvægt er að vinna slíkar hugmyndir í sátt við alla aðila og einnig er gott að draga fram það sem Kópavogsbær hefur nú þegar gert í lýðheilsumálum eldri borgara.
Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Birkir Jón Jónsson"
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.