Sunnubraut 30. Óskað eftir lækkun gatnagerðargjalda
Málsnúmer: 1901845
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1197. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 13. maí, lögð fram umsögn um beiðni lóðarhafa Sunnubrautar 30 um lækkun gatnagerðargjalda.
Bæjarstjórn hafnar afgreiðslu bæjarráðs með atkvæðum þeirra Péturs Hrafns Sigurðssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Ragnhildar Reynisdóttur en atkvæði með afgreiðslu bæjarráðs greiddu þau Birkir Jón Jónsson, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal og Jón Finnbogason. Ármann Kr. Ólafsson og Andri Steinn Hilmarsson greiddu ekki atkvæði.
Bæjarstjórn samþykkir erindi lóðarhafa Sunnubrautar 30 um lækkun gatnagerðargjalda með fimm atkvæðum þeirra Péturs Hrafns Sigurðssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Ragnhildar Reynisdóttur gegn fjórum atkvæðum þeirra Birkis Jóns Jónssonar, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal og Jóns Finnbogasonar. Ármann Kr. Ólafsson og Andri Steinn Hilmarsson greiddu ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2959. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 13. maí, lögð fram umsögn um beiðni lóðarhafa Sunnubrautar 30 um lækkun gatnagerðargjalda.
Bæjarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum þeirra Birkis Jóns Jónssonar, Karenar Halldórsdóttur og Hjördísar Johnson en Theódóra Þorsteinsdóttir og Bergljós Kristinsdóttir greiddu atkvæði með erindinu.
03
Bæjarráð - 2945. fundur
Frá þinglýstum eigendum Sunnubrautar 30, dags. 28. janúar, lagt fram erindi um lækkun gatnagerðargjalda Sunnubrautar 30.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.