Til baka í fundargerðir
Hæðasmári 6. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um endurnýjun rekstrarleyfis
Málsnúmer: 19031160
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2956. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 29. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Gló veitinga ehf., kt. 700608-0500, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hæðasmára 6, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.