Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Háhæðin - opið svæði á Rjúpnahæð: Kynning á framkvæmdarleyfi.

Málsnúmer: 1903202

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 49. fundur

Lögð fram tillaga Umhverfissviðs að framkvæmdarleyfi fyrir Háhæð, opið svæði á Rjúpnahæð milli Almannakórs og Akra- og Aflakórs annarsvegar og milli Austurkórs 33 og 35 hinsvegar.

Í gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir göngustígum og leiksvæði á svæðinu. Í tillögunni er auk útfærslu á ofangreindum atriðum gerð tillaga um áningar- og útsýnisstað með þrektækjum, bekkjum o.þ.h. og bætta stígtengingu við Austurkór. Greinargerð dags. 6. febrúar 2019 ásamt uppdrætti og skýringarmyndum.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynnt fyrir lóðarhöfum við Austurkór 15-47 (oddatölur), Akrakór 1-14 og Almannakór 1-11.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 112. fundur

Frá Umhverfissviði lögð fram tillaga að útfærslu á opnu svæði á Rjúpnahæð.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagt erindi.