Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Óskað eftir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar kynni framtíðarsýn sem þau hafa um allan reitinn við Brekkuhvar

Málsnúmer: 1903735

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2951. fundur

Frá fulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar er varðar framtíðarsýn fyrir reitinn við Brekkuhvarf, óskað er eftir því að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar kynni þá framtíðarsýn sem þau hafa fyrir allan reitinn við Brekkuhvarf þar sem nú liggur fyrir tillaga að hluta af reitnum fyrir 8 íbúða raðhús við Brekkuhvarf 1a og 1b. Ef engin framtíðarsýn er fyrir reitinn í heild þá óskum við eftir því að Kópavogsbær kalli eftir heildarskipulagi frá lóðarhafa/lóðarhöfum svo hægt sé að taka ákvörðun um deiliskipulagsbreytinguna við Brekkuhvarf 1a og 1b á réttum forsendum.

Við fögnum því að fresta eigi afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar er varðar Brekkuhvarf 1a og 1b og að skipulagsstjóra verði falið að leita eftir framtíðarsýn fyrir reitinn í heild. Bæjarfulltrúar Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar leggja þunga áherslu á að samráð verði haft íbúa í framhaldinu.