Skálaheiði 2, Digranes íþróttahús. Nemendafélag MK. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna skóladansleiks
Málsnúmer: 1904340
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2954. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 8. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 4. apríl, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi, kt. 470576-2199, um tækifærisleyfi til að mega halda skóladansleik fimmtudaginn 11. apríl 2019, frá klukkan 22:00 til kl. 02:00, í Digranesi íþróttahúsi, að Skálaheiði 2, 200 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/20017 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.