Til baka í fundargerðir
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, iðnaður og önnur landfrek starfsemi - Esjumelar (AT5).
Málsnúmer: 1904471
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 50. fundur
Lagt fram erindi Reykjavíkurborgar dags. 29. mars 2019 þar sem kynnt er breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana og varðaðar iðnað og aðra landfreka starfsemi á Esjumelum (AT5. Tillagan er dags. í febrúar 2019 og uppfærð 19. mars 2019. Markmið breytingarinnar er að tryggja landsvæði og lóðir fyrir þá atvinnustarfsemi sem þarf af umhverfisástæðum og vegna markmiða aðalskipulags, að víkja af eldri atvinnusvæðum og skerpa á markmiðum um uppbyggingu hvers atvinnusvæðis og endurskoða landnotkunarskilgreiningar og mæta aðkallandi þörf fyrir iðnaðarlóðir.
Lagt fram og kynnt.