Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Versalir 3, Íþróttahúsið Versölum. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna konukvölds

Málsnúmer: 1904485

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2956. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 17. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 6. apríl, þar sem óskað er umsagnar um umsókn íþróttafélagsins Gerplu, kt. 700672-0429, um tímabundið áfengisleyfi vegna konukvölds Gerpu sem verður haldið þann 4. maí frá kl. 18:00-03:00, í íþróttamiðstöðinni Versölum, að Versölum 3, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.