Til baka í fundargerðir
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030. Sjómannaskólareitur (Þ32) og Veðurstofuhæð (Þ35). Breytt landnotkun, fjölgun íbúða.
Málsnúmer: 1904812
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 51. fundur
Lögð fram tillaga Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan nær til Sjómannaskólareits (Þ32) og Veðurstofuhæðar (Þ35). Í tillögunni felst breytt landnotkun á hluta Sjómannaskólareits úr samfélagsþjónustu í íbúðarbyggð og opið svæði. Á Veðurstofuhæð er landnotkun skilgreind fyrir samfélagsþjónustu en breytist í miðsvæði með áherslu á blandaða byggð, íbúðir, samfélagsþjónustu, skrifstofur, verslun og þjónustu. Tillagan er sett fram í greinargerð dags. í apríl 2019.
Lagt fram og kynnt.