Kársnes. Vesturvör og Bakkavör. Útfærsla á göturými.
Málsnúmer: 1904999
Ferill máls
01
Hafnarstjórn - 111. fundur
Kynning frá skipulagsdeild. Birgir Sigurðsson skipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu.
Hafnarstjórn lýsir yfir ánægju með fyrirliggjandi útfærslu.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 115. fundur
Lögð fram tillaga Péturs Jónssonar og Höllu Hrundar Pétursdóttur, landslagsarkitekta Eflu verkfræðistofu að útfærslu á göturými Vesturvarar og Bakkavarar og umhverfi Kársneshafnar. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum dags. í apríl 2019.
Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar framlagðri tillögu og felur umhverfissviði að leggja fram aðrar tillögur í samræmi við hönnunarviðmið SSH um hjólreiðar og að göngustígar séu amk 2 metrar að breidd. Hugað verði betur að umferðarflæði og umferðaröryggi með tilliti til þverana og að í nýrri tillögu verði dregið verulega úr þverunum akandi yfir hjólastíga. Skoðaður verði sérstaklega fýsileiki þess að gera Bakkabraut að einstefnugötu.
03
Skipulagsráð - 51. fundur
Lögð fram tillaga Péturs Jónssonar hjá Eflu verkfræðistofu að útfærslu á göturými Vesturvarar og Bakkavarar og umhverfi Kársneshafnar. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum dags. í apríl 2019. Pétur Jónsson og Halla Hrund Pétursdóttir gera grein fyrir málinu.
Lagt fram og kynnt.