Til baka í fundargerðir
Rjúpnasalir 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer: 1905598
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2961. fundur
Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs, dags. 6. júní, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Lionsklúbbanna Munins og Ýrar um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 308.250,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð 308.250,-.