Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Leiðbeinandi merkingar fyrir hjólreiðamenn erindi frá Indriða Stefánssyni

Málsnúmer: 1906217

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 142. fundur

Lagt fram erindi Indriða Stefánssonar dags. 5. júní 2019 varðandi tillögu að settar yrðu upp leiðbeinandi merkingar um hraða þannig að hjólreiðamenn hafi hraðaviðmið á stígum innan Kópavogsbæjar og að farið verði í átak þess efnis að stemma stigu við ólölegum faratækjum á hjólreiðastígum, líkt og skellinöðrum án númera, rafhjólum sem búið er að breyta þannig að þau fari langt yfir 25 og öðrum ólöglegum faratækjum. Í kjölfarið væri hægt að reyna að fá önnur sveitarfélög í samstarf um að gera sambærilega átök innan sinna hjólastíga.

Lögð fram umsögn umhverfisvið dags. 14. júní 2021 varðandi hraðatakmarkanir á stígum og merkingar á hjólreiðaleiðum.

Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar erindinu.