Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 20, KK veitingar Kínahofið. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um endurnýjun rekstrarleyfis

Málsnúmer: 19081219

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2968. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 2. september, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 30. ágúst, þar sem óskað er umsagnar um umsókn KK veitinga ehf., kt. 670710-0680, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Nýbýlavegi 20, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.