Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Helgubraut 6. Kynning á byggingarleyfi. Fyrirspurn.

Málsnúmer: 19081239

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 57. fundur

Lögð fram fyrirspurn Einars Ólafssonar arkitekts, dags. 26. ágúst 2019, fh. lóðarhafa að Helgubraut 6. Í fyrirspurninni felst að óskað er eftir að byggja viðbyggingu við húsið að Helgubraut 6 og stakstæðan bílskúr á norðvestur hluta lóðarinnar. Húsið er timburhús, byggt árið 1966 og er í dag 86,8 m2. Viðbygging yrði 70m2 og bílskúrinn 30 m2, samtals yrði þá íbúðarhúsið 156,6 m2 eftir breytingar. Uppdrættir í mkv. 1:00 dags. 26. ágúst 2019.

Skipulagsráð samþykkir að málið verði unnið áfram í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.