Breyting á fjárfestinga- og fjármögnunaráætlun Sorpu. Lántaka
Málsnúmer: 1909051
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1200. fundur
Frá Sorpu, dags. 2. september, lagt fram erindi vegna breyttrar fjárfestinga- og fjármögnunaráætlunar SORPU; ákvörðun um að veita einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veiting umboðs til að undirrita lánasamning og taka að sér þær skuldbindingar sem greinir í lánssamningi vegna láns Sorpu frá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarfulltrúar BF-Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Í yfirstefnu Kópavogsbæjar er lögð áhersla á skilvirkan og ábyrgan rekstur. Jafnframt hefur sveitarfélagið ákveðið að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Það sem fram hefur komið síðustu vikur í rekstri SORPU bs. er engan veginn í samræmi við þá stefnu og þau markmið sem sveitarfélagið hefur sett sér. Undirrituð leggja til að neyðarstjórn verði skipuð undir stjórn sérfræðinga á sviði fjármála og mannvirkjagerðar. Meginhlutverk stjórnar verði að yfirfara þær áætlanir sem til eru um byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og öllum þeim framkvæmdum sem þeirri starfsemi fylgja. Komi með raunhæfar fjármögnunar- og rekstraráætlanir til langtíma, fylgi eftir framvindu verkefnisins og leggi fyrir stjórn SORPU, SSH og borgarstjórn og bæjarstjórnir með reglubundum hætti.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Einar Örn Þorvarðarson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Því skal haldið til haga að málið er á borði stjórnar Sorpu enda hefur hún tekið málið föstum tökum og falið formanni og varaformanni stjórnar að fá óháðan aðila til að framkvæma úttekt á starfsemi félagsins og leggja tillögur fram á næsta stjórnarfundi Sorpu.
Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Geirdal, Jón Finnbogason, Birkir Jón Jónsson"
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með níu samhljóða atkvæðum að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns SORPU bs hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 990.000.000,- til 15 ára. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til að fjármagna viðbótarkostnað við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, ásamt nauðsynlegum tækjabúnaði sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Kópavogs skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda SORPU bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Kópavogsbær selji eignarhlut í SORPU bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Kópavogsbær sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, kt: 170766-5049 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Pétur Hrafn Sigurðsson og Bergljót Kristinsdóttir greiddu ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2968. fundur
Frá Sorpu, dags. 2. september, lagt fram erindi vegna breyttrar fjárfestinga- og fjármögnunaráætlunar SORPU; ákvörðun um að veita einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veiting umboðs til að undirrita lánasamning og taka að sér þær skuldbindingar sem greinir í lánssamningi vegna láns Sorpu frá Lánasjóði sveitarfélaga.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.