Til baka í fundargerðir
Kársnesbraut 106, Cozy Campers. Umsagnarbeiðni vegna ökutækjaleigu
Málsnúmer: 1909650
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2975. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 2. október, lögð fram umsögn um rekstur og staðsetningu ökutækjaleigu í samræmi við beiðni Samgöngustofu frá 23. september. Umsækjandi er Birkir Már Benediktsson, f.h. Cozy Campers ehf., kt. 550514-0520. Sótt er um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með 8 bifreiðar að Kársnesbraut 106. Samkvæmt 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015 og 5. og 6. gr. rgl. nr. 840/2015 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að aðkoma og fjöldi bílastæða henti fyrir væntanlega starfsemi og hvort staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn með fimm atkvæðum.