Til baka í fundargerðir
Ósk um upplýsingar um tímaúthlutanir í íþróttahúsum bæjarins
Málsnúmer: 1909701
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 95. fundur
Lagt fram erindi frá aðalstjórn Breiðabliks dags. 26. sept. sl., þar sem óskað er eftir um upplýsingum um tímaúthlutun íþróttaráðs í íþróttahúsum bæjarins og hvaða forsendur liggja þar til grunna.
Varðandi tímaúthlutanir vegna íþróttahúsa veturinn 2019 - 2020 þá byggja þær á tillögum sem samþykktar voru upphaflega í stjórn SÍK og byggja á forsendum sem gert var grein fyrir í erindi sem stjórn SÍK samþykkti einnig. Íþróttaráð staðfesti ákvörðun SÍK. Varðandi umræðu um forsendur SÍK þá vísar Íþróttaráð Breiðablik á að bera upp erindið við SÍK.