Til baka í fundargerðir
Borgarholtsbraut 19. Kynning á byggingarleyfi. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 1909778
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 59. fundur
Lögð fram fyrirspurn Elínar Þórisdóttur arkitekts dags. 27. september 2019 fh. lóðarhafa Borgarholtsbrautar 19 vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar fyrir veitingasölu við húsið. Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði 64 m2 að flatarmáli með svölum á þaki. Einnig er gert ráð fyrir fjölgun bílastæða á lóð með aðkomu frá Urðarbraut. Uppdráttur í mkv. 1:100 ásamt skýringarmyndum dags. í september 2019.
Skipulagsráð samþykkir að málið verði unnið áfram í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.