Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi vegna vespuárásar

Málsnúmer: 1910351

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 121. fundur

Lagt fram erindi Lindu Jörundardóttur dags. 15. október 2019 varðandi umferðaröryggi á göngustígum og farartæki sem eru leyfð á göngustígum. Erindishafi varð fyrir því að vespu var ekið aftan á erindishafa á göngustíg í Kópavogsdalnum við Sporthúsið þann 22. júlí 2019.

Erindishafi leggur fram ósk um að Kópavogsbær einhendi sér í að aðskilja gangandi vegfarendur og farartæki á göngustígum bæjarins.

Vísað til afgreiðslu umhverfissviðs og vinnu við gerð Nýju línunnar - samgöngustefnu Kópavogsbæjar og áherslu á aðskilnað gangandi og hjólandi.