Til baka í fundargerðir
Tillaga um stuðning við uppsetningu rafhleðslustöðva við fjölbýlishús erindi frá Erlendi Geirdal
Málsnúmer: 1910362
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 121. fundur
Lagt fram erindi Erlends Geirdal dags. 10 nóvember 2019 varðandi tillögu um stuðning við uppsetningu rafhleðslustöðva við fjölbýlishús erindi frá Erlendi Geirdal. Að Kópavogsbær setji upp verkefni sem miðar að því að auðvelda eigendum fjöleignarhúsa að koma sér upp innviðum til hleðslu rafbíla á lóð sinni. Verkefnið felst í að efna til samráðs við orkusala og dreifingaraðila rafmagns og stofna sjóð sem eigendur stærri fjölbýlishúsa geti sótt í til að kosta að hluta uppsetningu rafhleðslustöðva við húsin.
Vísað til bæjarráðs og umsagnar umhverfissviðs þar sem sambærilegt erindi sem nú er til vinnslu í bæjarráði.