Til baka í fundargerðir
Breyting á Aðalskipulagi Ölfus 2010-2022. Bláfjöll - skíðasvæði. Breyting á Aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022. Deiliskipulag.
Málsnúmer: 1910668
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 61. fundur
Lagt fram erindi Skipulags- og byggingarsviðs Ölfuss dags. 29. október 2019 þar sem fram kemur að bæjarstjórn Ölfuss hefur samþykkt að auglýsa tillögu að skipulags- og matslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulag í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lýsingin er vegna stækkunar á skíðasvæðis Bláfjalla til austurs þar sem brekkur, göngubraut og ný diskalyfta verður í landi Ölfuss.
Lýsingin er unnin af Landslagi, dagsett september 2019.
Lagt fram og kynnt. Ekki eru gerðar athugasemdir við framlagða skipulagslýsingu.