Til baka í fundargerðir
Hamraborg 6, Salurinn, Tónlistarhús. Umsagnarbeiðni v. umsóknar um rekstrarleyfi
Málsnúmer: 2001042
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2984. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 7. janúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 15. nóvember sl. þar sem óskað er umsagnar um umsókn Salarins - Tónlistarhúss Kópavogs, kt. 681298-3129, um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hamraborg 6, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. reglugerðar nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn.