Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sumarstörf 2020

Málsnúmer: 2001133

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3023. fundur

Frá verkefnastjóra Vinnuskólans, lögð fram greinargerð um sumarstörf hjá Kópavogsbæ árið 2020 fyrir 18 ára og eldri.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3001. fundur

Frá verkefnastjóra á umhverfissviði, dags. 5. maí, lagðar fram tillögur um útfærslu sumarstarfa hjá bænum vegna breyttra forsendna sumarstarfa hjá bænum árið 2020. Bæjarráð frestaði málinu til næsta fundar á fundi sínum þann 30. apríl sl.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita öllum umsækjendum um sumarstörf, sem uppfylla skilyrði þar um, starf og að tekið verði mið af fyrirhuguðum stuðningi Vinnumálastofnunar.

03

Bæjarráð - 3000. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 27. apríl, lagðar fram tillögur um útfærslu sumarstarfa hjá bænum vegna breyttra forsendna sumarstarfa hjá bænum árið 2020.

Bæjarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar.

04

Bæjarráð - 2986. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 16. janúar, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar til að auglýsa laust til umsóknar sumarstörf hjá Kópavogsbæ 2020 fyrir 18 ára og eldri. Einnig lagðar fram til samþykktar vinnureglur við ráðningar sumarstarfsfólks.

Lagt fram og samþykkt.