Vallakór 12-14, Kórinn Íþróttahús, Sena ehf. Umsagnarbeiðni v. umsóknar um tækifærisleyfi
Málsnúmer: 2001234
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2987. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 21. janúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 21. janúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Senu ehf., kt. 660307-0950, um tækifærisleyfi til að mega halda tónleika Andrea Bocelli þann 23. maí nk. frá kl. 18:00-22:30, í íþróttahúsinu Kórnum, að Vallakór 12-14, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.