Hagasmári 1, Við sjálf ehf. Umsagnarbeiðni v. umsóknar um endurnýjun á rekstrarleyfi
Málsnúmer: 2001738
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2990. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 18. febrúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 21. janúar 2020, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Við sjálf ehf., kt. 521205-0160, um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað í flokki II, á staðnum Energia, að Hagasmára 1, Smáralind, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili, að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag svietarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.