Til baka í fundargerðir
Þátttaka Kópavogsbæjar í útboði Ríkiskaupa á vinnu iðnmeistara.
Málsnúmer: 2004569
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3000. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs og bæjarlögmanni, dags. 28. apríl, lagt fram erindi um þátttöku Kópavogsbæjar í útboði Ríkiskaupa á vinnu iðnmeistara. Lagt er til að bærinn segi sig frá útboði Ríkiskaupa og að heimilað verði útboð innan rammasamnings á vinnu iðnaðarmanna á vegum Kópavogsbæjar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að segja sig frá þátttöku í útboði Ríkiskaupa á vinnu iðnmeistara. Bæjarráð samþykkir jafnframt með fimm atkvæðum að fela umhverfissviði að undirbúa útboð á rammasamningi um vinnu iðnaðarmanna.