Til baka í fundargerðir
Engihjalli 8, 50 kall ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi
Málsnúmer: 2004600
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3002. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 12. maí, lagt fram bréf Sýslumannsns á höfuðborgarsvæðinu, dags. 17. apríl, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn 50 kalls ehf., kt. 440320-0820 um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Engihjalla 8, 200 Kópavogi, skv. skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn í samræmi við umsögn lögfræðideildar.