Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Péturs Hrafns Sigurðssonar vegna verkfalls Eflingar hjá Kópavogsbæ

Málsnúmer: 2005066

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3001. fundur

Frá bæjarfulltrúa Pétri Hrafni Sigurðssyni, óskað er eftir að teknar verði saman eftirfarandi upplýsingar vegna verkfalls Eflingar hjá Kópavogsbæ og lagðar fyrir bæjarráð.

1. Hvað tekur verkfall Eflingar til margra starfsmanna Kópavogsbæjar.

2. Hvernig er skipting starfsmanna sem eru í verkfalli á milli starfsgreina og sviða.

3. Hver er áætluð útgjaldaaukning Kópavogsbæjar í krónum og prósentum ef samið er á grundvelli nýgerðs samnings ríkisins og Reykjavíkurborgar við Eflingu.

a) Miðað við núverandi samning Kópavogsbæjar og Eflingar, með og án álagsgreiðslna.

b) Miðað við núverandi samning Kópavogsbæjar og samningstilboð samninganefndar Sambands Íslenskra Sveitafélaga.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar starfsmannastjóra.