Til baka í fundargerðir
Erindi bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur vegna ýmissa mála
Málsnúmer: 2005073
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3001. fundur
Frá bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur, lagðar fram fyrirspurnir um ýmis mál.
1. Óska eftir heildaráætlun um viðhald og endurnýjun á götum og göngu- og hjólastígum á Kársnesinu.
2. Jafnframt tillaga um að farið verði í átak í að laga til og hreinsa umhverfið á Kársnesinu í samvinnu við fyrirtæki og íbúa á svæðinu.
3. Fá kynningu á Aðalskipulagi Kópavogs sem er í vinnslu.
4. Tillaga um að umhverfi menningartorfunnar verði skipulagt í heild með nýjar og breyttar áherslur sem laða að menningartengda viðburði.
5. Óska eftir að fá kynningu á framkvæmdum á útivistarsvæðum 2020 og áætlun um gróður sem settur verður niður 2020 frá garðyrkjustjóra
Lagt fram.