Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla

Málsnúmer: 2005642

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 140. fundur

Lagt fram til umræðu.

Eva Sjöfn Helgadóttir fulltrúi Pírata, Jóhanna Pálsdóttir fulltrúi Viðreisnar og Erla Dóra Magnúsdóttir fulltrúi Samfylkingar leggja til að Kópavogsbær setji af stað vinnuhóp með það að markmiði að leikskólar bæjarins verði að einhverju marki gjaldfrjálsir og jafni með því rétt allra barna í bænum til menntunar á fyrsta skólastig.

Bergþóra Þórhallsdóttir og Hannes Þórður Þorvaldsson fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sverrrir Kári Karlsson fulltrúi Framsóknarflokks styðja við þá vinnu sem fram hefur farið á vegum Menntasviðs varðandi tillöguna og leggja til að henni verði haldið áfram í samstarfi við Velferðarsvið Kópavogsbæjar.

02

Leikskólanefnd - 126. fundur

Lögð fram tillaga að frekari skoðun um sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla.

Leikskólanefnd samþykkir tillöguna.

03

Leikskólanefnd - 123. fundur

Lagt fram til rýnis og umsagnar.

Málið rætt og frestað til næsta fundar. Menntasviði er falið að útfæra tillögur að leiðum til áframhaldandi skoðunar og rýni þessa máls, sem lagðar verða fyrir næsta fund nefndarinnar.

04

Bæjarráð - 3021. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 12. október, lögð fram umsögn um tillögu bæjarfulltrúa varðandi breytingu á gjaldskrá leikskóla í 6 tíma gjaldfrjálsa vistun á dag.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til frekari rýni og umsagnar leikskólanefndar.

05

Bæjarráð - 3003. fundur

Frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjarfulltrúa, tillaga um að gerðar verði breytingar á gjaldskrá leikskóla með þeim hætti að fyrstu sex klukkustundir dagsins verði gjaldfrjálsar og innheimt verði gjald sem nemur raunkostnaði fyrir vistun umfram sex tímana.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til menntasviðs til umsagnar.