Til baka í fundargerðir
Hlíðasmári 5, 201 hótel ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi
Málsnúmer: 20061173
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3009. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 2. júlí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 25. júní, þar sem óskað er umsagnar um umsókn 201 Hótels ehf., kt. 410617-1450, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki IV, að Hlíðasmára 5, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 26. gr. í reglugerð nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar