Vallakór 12-14. Kórinn íþróttahús, Sena ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer: 2007679
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3010. fundur
Frá lögfræðideild. dags. 20. júlí 2020, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 16.júlí 2020, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Senu ehf., kt. 660307-0950, um tækifærisleyfi til að mega halda tónleika Andrea Bocelli þann 3. október nk. frá kl. 18:00-22:30, í íþróttahúsinu Kórnum, að Vallakór 12-14, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að afgreiðslutími og staðsetning staðar sé innan marka reglna og skipulags sveitarfélags og veitir jákvæða umsögn.