Borgarholtsbraut 19, Brauðkaup. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi
Málsnúmer: 2007848
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3010. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 30. júlí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29. júlí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kársnes ehf., kt. 560119-2830, um tímabundið áfengisleyfi vegna Kársneshátiðar 15. ágúst frá kl. 12:00-23:00, á staðnum Brauðkaup, að Borgarholtsbraut 19, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum að afgreiðslutími og staðsetning staðar sé innan marka reglna og skipulags sveitarfélags og veitir jákvæða umsögn.