Kynningar á stöðu Barnaverndar
Málsnúmer: 2008868
Ferill máls
01
Barnaverndarnefnd - 136. fundur
Deildarstjóri barnaverndar leggur fram málavog barnaverndar Kópavogs.
Barnaverndarnefnd Kópavogs lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu mála og álagi á starfsfólk. Er þetta í þriðja sinn sem niðurstöður málavogar sýna fram á óásættanlegt álagsumhverfi sem starfsfólk barnaverndar býr við.
Nefndin tekur undir með deildarstjóra barnaverndar að í slíku álagsumhverfi er hætt við að nákvæmni minnki, að gæðastuðlum sé síður fylgt og að mistök verði fleiri og alvarlegri. Starfsumhverfið er að þyngjast meðfram auknum málafjölda og telur nefndin nauðsynlegt að brugðist sé við með fjölgun stöðugilda.
Er það mat nefndarinnar að endurteknar mælingar með málavoginni sýni með ótvíræðum hætti fram á of mikið álag og brýna nauðsyn þess að stöðugildum barnaverndar fjölgi.
02
Velferðarráð - 102. fundur
Lagt fram til upplýsingar.
Velferðarráð þakkar greinargóða kynningu.
03
Barnaverndarnefnd - 123. fundur
Lögð fyrir Barnaverndarnefnd Kópavogs þann 22. júní 2021 skýrsla starfshóps stjórnenda í barnavernd á höfuðborgarsvæðinu um börn með fjölþættan vanda.
Lagt fram til kynningar.
04
Barnaverndarnefnd - 120. fundur
Deildarstjóri barnaverndar fór yfir niðurstöðu álagsmælinga í barnavernd og tölfræðiupplýsingar.
Barnaverndarnefnd Kópavogs lýsir yfir miklum áhyggjum af vaxandi málafjölda í barnavernd og telur nauðsynlegt að fjölgað sé í starfsliði barnaverndar vegna þess álags sem mælist vegna mikillar fjölgunar barnaverndartilkynninga.
05
Barnaverndarnefnd - 117. fundur
Anna Eygló Karlsdóttir deildarstjóri fór yfir stöðu mála í barnavernd.
06
Bæjarráð - 3026. fundur
07
Barnaverndarnefnd - 112. fundur
Barnaverndarnefnd lýsir yfir þungum áhyggjum af mikilli fjölgun tilkynninga og auknum alvarleika mála sem hefur valdið óhóflegu álagi á starfsmenn. Nefndin telur að bregðast þurfi strax við þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er með því að fjölga starfsfólki barnaverndar.
08
Barnaverndarnefnd - 110. fundur
Lagt fram til kynningar.
Barnaverndarnefnd Kópavogs lýsir yfir áhyggjum sínum af fjölgun barnaverndarmála og niðurstöðu álagsmælinga starfsmanna barnaverndar í Kópavogi. Nefndin óskar eftir að deildarstjóri barnaverndar leggi fram frekari greiningu á alvarleika mála.
09
Barnaverndarnefnd - 109. fundur
Frestað til næsta fundar.