Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um minnisblað vegna aðgerða við áhrifum Covid um að fjölga sumarstörfum og nýsköpunar

Málsnúmer: 2009429

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1221. fundur

Ósk bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um minnisblað vegna aðgerða í kjölfar Covid 19 sem fólu í sér fjölgun sumarstarfa og hvatningu til nýsköpunar. Í byrjun apríl samþykkti bæjarráð aðgerðir bæjarstjórnar Kópavogs til að koma til móts við íbúa og fyrirtæki í Kópavogi vegna áhrifa af Covid-19. Ein aðgerðin sneri að því að fjölga sumarstörfum og hvetja þar sérstaklega til nýsköpunar, í samstarfi við Nýsköpunarsjóð námsmanna.

Þar sem tímabili sumarstarfa er nú lokið óska ég eftir að fá minnisblað um hvernig til tókst með þennan þátt.

02

Bæjarráð - 3015. fundur

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarritara.