Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um að hafin verði vinna við gerð loftlagsstefnu Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 2009430

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3015. fundur

Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, ósk um að hafin verði vinna við gerð loftslagsstefnu Kópavogsbæjar. Á fundi bæjarráðs þann 11. október 2018 lögðu Píratar til í bæjarráði að Kópavogsbær mótaði stefnu í loftlagsmálum. Í kjölfarið samþykkti umhverfis- og samgöngunefnd að loftlagsstefna- og loftgæðaáætlun Kópavogsbæjar yrði hluti af Umhverfistefnu Kópavogsbæjar. Samkvæmt lögum um breytingar á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 skulu öll sveitarfélög setja sér loftslagsstefnu. Stefnan skal vera tilbúin eigi síðar en í lok árs 2021. Stefnan skal innihalda skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun starfseminnar ásamt aðgerðum svo að þeim markmiðum verði náð.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.