Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, BF Viðreisnar og Samfylkingar um árangursmat á nefndafyrirkomulagi Bæjarstjórnar Kópavogs
Málsnúmer: 2009435
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1221. fundur
Frá bæjarfulltrúum Pírata, BF Viðreisnar og Samfylkingar, tillaga um árangursmat á nefndarfyrirkomulagi bæjarstjórnar Kópavogs. Í stefnu og framtíðarsýn Kópavogsbæjar segir að bærinn leggi áherslu á skilvirkan og ábyrgan rekstur og sé rekinn af ráðdeild þar sem áhersla er lögð á sjálfbærni og skilvirkni. Í tengslum við nýsamþykkta skipuritsbreytingar og yfirstefnu Kópavogsbæjar þá leggjum við fram tillögu um að gert verði árangursmat á núverandi nefndarfyrirkomulagi bæjarstjórnar Kópavogs. Þá er átt við fastanefndir, aðrar lögbundnar og ólögbundnar nefndir og stýrihópa. Meta þarf hvort nefndirnar uppfylli þau markmið sem erindisbréf þeirra leggja upp með, hvort við séum að ná utan um alla málaflokka sem okkur ber með núverandi nefndum, og hvort tækifæri séu til þess að einfalda, hagræða og auka skilvirkni nefndakerfisins.
02
Bæjarráð - 3015. fundur

Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar og kostnaðarmats hjá bæjarritara.