Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk um úthlutun þriggja helga undir mót í Kórnum á vegum knattspyrnudeildar HK

Málsnúmer: 2009436

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 106. fundur

Lagt fram erindi HK, f.h knattspyrnudeildar félagsins dags. 14. sept. sl., þar sem óskað er eftir því að deildinni verði úthlutað þremur helgum inni í Kórnum undir knattspyrnumót yngri flokka. Um var að ræða helgarnar 7.-8. nóv og 21.-22. nóv. 2020 og 6.-7. febr. 2021.

Tvö fyrstu mótin hafa nú verið felld niður vegna hertra samkomubannsráðstafana sóttvarnaryfirvalda.

Íþróttaráð var hins vegar búið að samþykkja á fundum ráðsins 22. ágúst og 3.október 2019, að HK fengi úthlutað þremur helgum í Kórnum fyrir mót. Það var þó á þeim forsendum að það skarist ekki á við námskeiðahald KSÍ í Kórnum, jafnframt því að það rúmaðist innan fjárhagsáætlunar ársins fyrir Kórinn.

Í ljósi breyttra aðstæðna felur íþróttaráð starfsmönnum að ræða við HK með hvaða hætti verði hægt að verða við ósk félagsins um sambærilegt mótahald á komandi ári.