Þorrasalir 13-15. Athugasemdir við teikningar og samþykktir.
Málsnúmer: 2010137
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1296. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 18.03.2024, lagt fram erindi þar sem er óskað eftir heimild bæjarráðs til að ljúka viðræðum vegna óleyfisframkvæmda.
02
Bæjarráð - 3168. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 18.03.2024, lagt fram erindi þar sem er óskað eftir heimild bæjarráðs til að ljúka viðræðum vegna óleyfisframkvæmda.
Bæjarráð samþykkir að veita heimild til að ljúka viðræðum vegna óleyfisframkvæmda ásamt því að greiða bætur að heildarupphæð kr. 7.500.000,- Samhliða greiðslu sáttarbóta verður gert samkomulag milli húsfélags Þorrasala 9-11 og Kópavogsbæjar um lok máls. Í kjölfarið verða gerðar breytingar á gildandi deiliskipulagi lóðar nr. 13-15 við Þorrasali í samræmi við núverandi staðsetningu innkeyrslunnar og gefið út nýtt byggingarleyfi.
03
Bæjarráð - 3024. fundur
Frá húsfélaginu Þorrasölum 9-11, dags. 12. nóvember, lögð fram ítrekun á erindi húsfélagsins frá 8. október sl. um ólögmæta innkeyrslu að bílageymslu Þorrasala 13-15 í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 19. ágúst 2019 er felldi úr gildi umrætt byggingarleyfi að því er varðar aðkomu að bílageymslu hússins og synjun Kópavogsbæjar um að beita þvingunarúrræðum vegna málsins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til frekari úrvinnslu sviðsstjóra umhverfissviðs.